Aukið úrval tengiltvinnbíla frá Mercedes-Benz

Mercedes Benz GLE
Mercedes Benz GLE mbl.is/Hari

Úrval Mercedes-Benz tengiltvinnbíla hefur aldrei verið meira en nú, eða alls 20 gerðir. Tengiltvinnbílarnnir eru búnir rafmagnsmótor og bensínvél.

„Mercedes-Benz býður nú tengiltvinnbíla í öllum stæðrarflokkum allt frá borgarbílnum lipra A-Class til stóra lúxusbílsins S-Class, og frá netta sporjeppanum GLA til stóra GLE jeppans. Með breiðari línu tengiltvinnbíla er Mercedes-Benz að teygja sig til stærri hóps viðskiptavina og þeirra þarfa,“ segir í tilkynningu.

Drægi tengiltvinnbílannar er frá 50 km til allt að 100 km á rafmagninu eingöngu með EQ Power tækninni. Segir í tilkynningunni að tengiltvinntæknin sameini akstursgetu og hagkvæmni rafmótors og drægi brunahreyfils svo úr verði afar góð heildarafköst.

Mercedes-Benz býður einnig upp á sportjeppann EQC sem er 100% hreinn rafbíll. EQC hefur slegið í gegn síðan hann kom á markað snemma á síðasta ári og verið mjög vinsæll hér á landi sem og um heim allan.

Mercedes-Benz leggur mjög mikla áherslu á rafbíla og stofnaði nýtt vörumerki innan fyrirtækisins árið 2016 sem ber heitið EQ og vísar í gildi vörumerkisins „Emotion and Intelligence“.  EQ mun standa fyrir framleiðslu rafbíla Mercedes-Benz.

Mercedes-Benz ætlar sér að vera komið með allt að tíu útgáfur rafbíla árið 2022 og vonast til að þeir muni standa undir 15-25% sölutekna árið 2025.

mbl.is