Minni mengun frá bílunum

Aðgerðir í loftslagsmálum þykja eitt brýnasta viðfangsefni samtímans.
Aðgerðir í loftslagsmálum þykja eitt brýnasta viðfangsefni samtímans. mbl.is/Sigurður Bogi

Losun gróðurhúsalofttegunda frá vegasamgöngum á Íslandi dróst saman um 2% á milli áranna 2018 og 2019. Þetta er í fyrsta sinn frá árinu 2014 sem slíkt gerist. Þetta kemur fram í bráðabirgðaniðurstöðum Umhverfisstofnunar.

Losun tegunda með gróðurhúsalofti vegna urðunar dróst saman um 10% milli fyrrgreindra ára. Aftur á móti jókst losun frá jarðvarmavirkjunum um 5%. Losun frá iðnaðarferlum og efnanotkun jókst umtalsvert. Sú losun er mest vegna kælimiðla sem hafa sjö ára líftíma og því er losun þeirra í beinu samhengi við innflutning á þeim sjö árum fyrr.

Hingað til hafa tölur þessar verið gefnar út tveimur árum eftir að losun á sér stað, þegar þeim er skilað inn til þeirra sem sjá um rammasamning Sameinuðu þjóðanna um breytingar á loftslagi.

Samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðunum dróst losun á beinni ábyrgð Íslands saman um 0,3% á milli áranna 2018 og 2019.

„Með Parísarsáttmálanum höfum við skuldbundið okkur til að ná 29% samdrætti í losun á beinni ábyrgð Íslands árið 2030, miðað við losun ársins 2005. Bráðabirgðaniðurstöðurnar benda til þess að við höfum nú náð 6,7% af þeim 29%. Stefnt er að að minnsta kosti 35% samdrætti árið 2030 samkvæmt aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar,“ segir í tilkynningu Umhverfisstofnunar í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: