Nokkrir rammar úr fjórðu þáttaröð True Detective: Night Country, birtast í stiklu fyrir næsta ár streymisveitunnar HBO. Tökur hafa staðið yfir hér á Íslandi undanfarna mánuði en ef marka má stiklu HBO fara þættirnir í loftið á komandi ári.
Í brotunum má sjá atriði úr skautahöllinni og einnig innanhúss. Jodie Foster og Kali Reis fara með aðalhlutverk í þáttunum.
Gera má ráð fyrir að True Detective verði aðgengilegir á Sjónvarpi Símans þegar þeir koma út, en Síminn gerði nýverið stóran samning við framleiðslufyrirtækið HBO.
Brotið úr True Detective hefst á 1:15.