Með forsjá yfir yngri bróður eftir andlát

Thompson spilar með Cleveland Cavaliers í NBA-deildinni.
Thompson spilar með Cleveland Cavaliers í NBA-deildinni. AFP

Hæstiréttur í Kaliforníu veitti bandaríska körfuboltamanninum Tristan Thompson tímabundna forsjá yfir 17 ára gömlum bróður hans, Amari Thompson. Bræðurnir misstu móður sína, Andreu Thompson, í byrjun árs en hún lést af völdum hjartaáfalls. 

Dómari samþykkti á miðvikudag beiðni Thompson, 32 ára, en leikmaðurinn sóttist eftir forsjá þar sem Amari er fatlaður og þarfnast töluverðrar aðstoðar við athafnir daglegs lífs. Thompson var veitt heimild til að ráða persónulegum högum bróður síns og ákveða framtíðarbúsetu. 

Samkvæmt dómsskjölum þá fullyrðir Thompson að faðir þeirra, Trevor Thompson, hafi ekki umgengist Amari frá árinu 2014.

Sjálfur er Thompson fjögurra barna faðir, en hann á tvö börn með raunveruleikastjörnunni Khloé Kardashian, True og Tatum. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þér hafi tekist að leggja fyrir að undanförnu ættirðu ekki láta ginnast af gylliboðum um skjótfenginn gróða. Frestaðu því ekki til morguns sem þú getur klárað í dag.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þér hafi tekist að leggja fyrir að undanförnu ættirðu ekki láta ginnast af gylliboðum um skjótfenginn gróða. Frestaðu því ekki til morguns sem þú getur klárað í dag.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg