Auður með tónleika eftir tveggja ára hlé

Miðasala hefst á hádegi í dag.
Miðasala hefst á hádegi í dag. Ljósmynd/Auðunn Lúthersson

Tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson, betur þekktur undir listamannsnafninu Auður, verður með tónleika í Iðnó laugardaginn 16. desember. Tónlistarmaðurinn ætlar að nýta sér heimferðina um jólin og halda sína fyrstu tónleika á Íslandi í tvö ár. 

„Mig langar að nýta heimferðina og henda í eina neglu. Ég hlakka til að koma fram í þessu fallega húsi og verð með frábæra tónlistarmenn mér til halds og trausts,“ segir Auður, sem flutti til Los Angeles í byrjun árs og starfar þar sem upptökustjóri og lagahöfundur. 

„Ég hef lært rosalega margt í Los Angeles. Hér úti er iðnaðurinn allt annar en á Íslandi, en ég reyni að vinna eins og mikið og ég get. Þetta er algjört hark en ótrúlega gaman.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú stendur allt og fellur með því að þú sért þolinmóður og berir þig með reisn. Reyndu að vinna í góðum skorpum og hvíla þig inn á milli - þannig kemurðu meiru í verk.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú stendur allt og fellur með því að þú sért þolinmóður og berir þig með reisn. Reyndu að vinna í góðum skorpum og hvíla þig inn á milli - þannig kemurðu meiru í verk.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir