Skjálfti upp á 7,5 við Indónesíu

Skjálftinn reið yfir nú rétt rúmlega 10 að íslenskum tíma.
Skjálftinn reið yfir nú rétt rúmlega 10 að íslenskum tíma. Skjáskot/usgs.gov

Skjálfti upp á 7,5 reið yfir Indónesíu nú klukkan 10:02 að íslenskum tíma. Fjórir aðrir skjálftar af stærð 4,9 upp í 6,1 urðu á svipuðum slóðum fyrr í morgun.

Skjálftinn varð í héraðinu Central Sulawesi á eyjunni Sulawesi, um 80 kílómetra norður af borginni Palu.

Almannavarnir í Indónesíu hafa gefið út viðvörun vegna möguleika á flóðbylgjum í kjölfar skjálftans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert