Fellibylurinn Mikael sem stefnir á austurströnd Bandaríkjanna flokkast nú sem annars stigs fellibylur. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í 35 sýslum og 120.000 íbúum í Bay-sýslu hefur verið gert að yfirgefa heimili sín. Vindhraði hefur náð yfir 45 metra á sekúndu og hefur Rick Scott, ríkisstjórinn í Flórída, varað við að mikil eyðilegging geti fylgt fellibylnum.
Mikael er staddur á Mexíkóflóa og talið er að hann muni koma að landi við Flórída síðdegis á morgun. Samkvæmt upplýsingum frá bandarísku fellibyljastofnuninni (NHC) mun ólgusjór, hellirigning og ógnarsterkir vindar fylgja Mikael sem ógnað geti heilsu og lífi manna. Ofsarigningin gæti kallað fram „lífshættuleg skyndiflóð“, allt að 3,5 metra að dýpt, segir NHC.
2.500 manns úr þjóðvarðliði Bandaríkjanna eru í viðbragðsstöðu vegna fellibylsins. Líkur eru á að Mikael verði orðinn þriðja stigs fellibylur þegar hann nær landi.