Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti í nótt fjárlagafrumvarp þegar þingið kom saman í fyrsta sinn eftir að demókratar tóku formlega við stjórn í deildinni. Yfirgnæfandi líkur eru þó á því að frumvarpið verði ekki samþykkt í öldungadeildinni eða að Donald Trump Bandaríkjaforseti muni beita neitunarvaldi, komist frumvarpið í gegnum öldungadeildina.
Trump hefur fullyrt að hann muni ekki samþykkja fjárlög nema þar sé kveðið á um fjármögnun landamæramúrs við Mexíkó. Ekkert slíkt er að finna í fjárlögunum og því verður að teljast líklegt að frumvarpið komist ekki lengra og að um fjórðungur ríkisstofnana verði áfram lokaður, en lokunin hefur staðið yfir í tvær vikur.
Lokunin hefur áhrif á um 800.0000 starfsmenn ríkisins, en fjöldi starfsmanna fær ekki greidd laun og stofnanir fá ekki fjármagn meðan á lokuninni stendur
Nancy Pelosi, sem tók við starfi þingforseta í fulltrúadeildinni í gær, segir að ekki komi til greina að koma til móts við kröfur Trumps um fjármögnun landamæramúrs í fjárlögum þingsins.