Donald Trump Bandaríkjaforseti kastar kaldri kveðju á Nancy Pelosi, forseta fulltrúadeildar þingsins, á Twitter eftir að hún hafnaði sáttarboði forsetans sem hann lagði fram í gærkvöldi vegna deilu hans og meirihluta þingsins, þar sem demókratar ráða ríkjum, vegna fjárlagafrumvarps.
Deilt er um fjárveitingu upp á 5,7 milljarða dala sem Trump vill fá til að byggja vegg á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó, en veggurinn var eitt af helstu kosningaloforðum hans. Trump hefur neitað að skrifa undir fjárlög þar sem þingið hefur ekki fallist á fjárveitingu vegna byggingu veggjarins og hefur um þriðjungur alríkisstofnana verið lokaður í mánuð vegna ágreiningsins. Hefur það haft áhrif á yfir 800 þúsund starfsmenn sem hafa verið launalausir.
„Nancy Pelosi hefur hagað sér óskynsamlega og er farin svo langt til vinstri að hún er orðin róttækur demókrati,“ segir Trump í færslu á Twitter, þar sem hann fór mikinn og sagði Pelosi í leiðinni að hreinsa upp götur San Francisco þar sem þær væru ógeðslegar, en Pelosi er frá borginni.
Í sáttarboðinu fólst að hann myndi framlengja til þriggja ára heimild fyrir innflytjendur sem falla undir DACA-úrræði, en með því fá ungir innflytjendur leyfi til að dvelja í Bandaríkjunum á ákveðnum forsendum. Þeir sem hafa notið góðs af úrræðinu eru gjarnan kallaðir Dreamers. Trump hefur hingað til verið mjög mótfallinn þessu úrræði.
Auk þess fólst í boðinu að framlengja landsvistarleyfi fyrir fólk sem kemur frá stríðshrjáðum löndum eða löndum þar sem náttúruhamfarir hafa geisað. Kallast það úrræði TPS (e. Temporary protection status). Samtals falla um 700 þúsund manns undir DACA-úrræðið og 300 þúsund undir TPS-úrræðið.
Trump segir einnig í færslu á Twitter að ekki standi til fjarlægja þær 11 milljónir manns sem komu til Bandaríkjanna með ólöglegum hætti en hann segir Pelosi að vera á varðbergi. „Farðu varlega, Nancy!“ segir í færslu hans.
Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, hefur séð um samskipti ríkisstjórnar Trumps við þingið og segir hann að frumvarp með tillögum forsetans verði kynnt á öldungadeildaþinginu, þar sem repúblikanar hafa meirihluta, á þriðjudag.