Að minnsta kosti fjórir eru látnir og 120 slasaðir í Tyrklandi, eftir að sterkur jarðskjálfti varð undan ströndum landsins, norðan við grísku eyjuna Samos.
Líklegt er að fjölga eigi eftir í þessum hópi þegar rykið hefur sest.
Byggingar hafa hrunið og sjór flætt inn í tyrknesku hafnarborgina Izmir. Myndir þaðan sýna byggingar sem hrunið hafa til grunna og agndofa fólk sem reynir að komast leiðar sinnar um stræti borgarinnar.
Borgarstjórinn Tunc Soyer segist í samtali við fréttastöðina CNN Turk vita af hruni að minnsta kosti tuttugu bygginga.
Myndir úr lofti sem sýndar voru á tyrknesku sjónvarpsstöðinni NTV sýna heilu húsaraðirnar gjöreyðilagðar.