Miðbærinn eins og eldspýtnahrúga

Kertaverksmiðja í Mayfield hrundi til grunna.
Kertaverksmiðja í Mayfield hrundi til grunna. AFP

Miðbærinn í tíu þúsund manna bænum Mayfield í Kentucky er eins og „eldspýtnahrúga“. Þetta sagði bæjarstjórinn Kathy O'Nan í samtali við fréttastofu CNN síðdegis í dag að staðartíma, eftir að hvirfilbylur reið yfir mörg ríki Bandaríkjanna í nótt og varð fjölda fólks að bana.

Eitt fórnarlamba hvirfilbylsins borið út úr kertaverksmiðjunni í Mayfield.
Eitt fórnarlamba hvirfilbylsins borið út úr kertaverksmiðjunni í Mayfield. AFP

„Þegar ég gekk út úr ráðhúsinu í morgun, þá ... þetta leit út eins og eldspýtur,“ sagði O'Nan.

„Kirkjurnar í miðbænum hafa verið eyðilagðar, dómshúsið okkar, sem er auðvitað í miðju bæjarins, er rústir einar, vatnslagnirnar okkar virka ekki og það er ekkert rafmagn.“

Skemmdirnar skoðaðar í morgunsárið eftir að hvirfilbylurinn reið yfir.
Skemmdirnar skoðaðar í morgunsárið eftir að hvirfilbylurinn reið yfir. AFP
Frá miðbæ Mayfield.
Frá miðbæ Mayfield. AFP
Biden ávarpaði þjóðina nú í kvöld að íslenskum tíma.
Biden ávarpaði þjóðina nú í kvöld að íslenskum tíma. AFP

Einn stærsti atburðurinn af þessu tagi

Óveðrið sem skall á í nótt og skapaði fjölda fellibylja er líklega einn stærsti atburðurinn af þessu tagi í sögu landsins, sagði forsetinn Joe Biden nú fyrir skemmstu.

„Þetta er harmleikur. Og við vitum ekki enn hversu mörg líf töpuðust og hversu víðtækt tjónið er,“ sagði Biden í sjónvörpuðu ávarpi. Lofaði hann aðstoð alríkisins við þau fimm ríki sem óveðrið skaðaði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert