Flóðbylgjuviðvörun hefur verið gefin út í þó nokkrum löndum, þar á meðal Tonga og Nýja-Sjálandi eftir stórt eldgos neðansjávar.
Í myndum af samfélagsmiðlum sjást öldur skella á kirkjum og heimilum kyrrahafseyjunnar Tonga. Vitni segja að aska falli yfir höfuðborgina Nuku'alofa.
🇹🇴|ÚLTIMA HORA: El volcán submarino Hunga Tonga-Hunga Ha'apai, ubicado en el Pacífico Sur, entró en erupción este jueves, generando un pequeño tsunami. pic.twitter.com/LYuyqL71di
— Alerta News 🚨 (@Alerta_News_) January 14, 2022
Íbúar eyjunnar hafa verið hvattir til að færa sig í efri byggðir, að sögn BBC. Eldgosið er það nýjasta í röð eldgosa sem hafa orðið undanfarið í eldfjallinu Hunga Tonga Hunga Ha´apai.
Tonga's Hunga Tonga volcano just had one of the most violent volcano eruptions ever captured on satellite. pic.twitter.com/M2D2j52gNn
— US StormWatch (@US_Stormwatch) January 15, 2022
Að sögn embættismanna í höfuðborg Fiji-eyja, Suva , heyrðust drunur úr eldgosinu, sem stóð yfir í átta mínútur, hátt og snjallt þar, í meira en 800 kílómetra fjarlægð.