Hjálpargögn komin til Tonga

Gervihnattamynd sem var tekin 15. janúar sem sýnir gosið í …
Gervihnattamynd sem var tekin 15. janúar sem sýnir gosið í Hunga-Tonga-Hunga-Haa'pai. AFP

Fyrstu flugvélarnar sem flytja hjálpargögn til Tonga í Kyrrahafi eru komnar til landsins.

Ekki hefur verið hægt að fljúga til eyjarinnar síðan á laugardaginn eftir að flóðbylgja gekk þar yfir í kjölfar neðansjávareldgoss.

Embættismenn sögðu að herflugvélar frá Ástralíu og Nýja-Sjálandi hafi lent á flugvellinum í Tonga, sem hafði fram að því verið þakinn ösku eftir eldgosið.

Hamfarirnar hafa haft áhrif á yfir 80% þeirra 100 þúsund íbúa sem búa á eyjunni, samkvæmt mati Sameinuðu þjóðanna. Brýn þörf er talin á drykkjarvatni fyrir íbúana.

Eld­gosið sem braust út í Tonga-eyja­klas­an­um var að öll­um lík­ind­um kraft­mesta gos ald­ar­inn­ar hingað til, að sögn Magnúsar Tuma Guðmundssonar, prófessors í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert