Macron og Pútín ræðast aftur við

Vladimír Pútín Rússlandsforseti og Emmanuel Macron Frakklandsforseti.
Vladimír Pútín Rússlandsforseti og Emmanuel Macron Frakklandsforseti. AFP

Emmanuel Macron Frakklandsforseti og Vladimír Pútín Rússlandsforseti ræddust aftur við í síma í kvöld, en þeir töluðu saman í tvo klukkutíma fyrr í dag. Franska forsetaembættið greindi frá þessu nú fyrir stundu.

Samtal þeirra stóð að þessu sinni yfir í klukkutíma, en franska forsetaembættið sagði eftir þann fund að meðal annars stæði til að reyna að koma á fundi forsetanna tveggja til þess að ræða lausnir á Úkraínudeilunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert