Kínverjar halda áfram heræfingum við Taívan

Kínverjar voru ósáttir við heimsókn Bandaríkjamanna.
Kínverjar voru ósáttir við heimsókn Bandaríkjamanna. AFP/Sam Yeh

Kínverjar héldu heræfingar í kringum Taívan í dag, en þeir hafa haldið æfingar í kringum eyjuna síðan í byrjun ágúst þegar Nancy Pe­losi, for­seti full­trúa­deild­ar Banda­ríkjaþings, heimsótti Taívan. 

Yf­ir­völd í Kína voru afar ósátt við heim­sóknina og töldu hana inn­grip í inn­an­rík­is­mál lands­ins. 

Í kjölfarið gripu Kínverjar til ýmissa aðgerða, þar á meðal hernaðaræfingar um­hverf­is eyj­una.

Ógn sem stafar af einræðisríkjum

Í síðustu viku hóf Taívan svo um­fangs­mikl­ar stór­skota­liðsæfing­ar til að æfa varn­ar­viðbrögð ef til kínverskrar innrásar kæmi.

Fimm manna sendinefnd bandaríkjaþings hitti Tsai Ing-wen forseta Taívans í dag. Á fundi þeirra sagði Ing-wen meðal annars innrás Rússa í Úkraínu sýna þá ógn sem stafar af einræðisríkjum. Þakkaði hún einnig Bandaríkjamönnum fyrir stuðninginn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert