Boris Johnsons, fráfarandi forsætisráðherra Bretlands, hét því að styðja arftaka sinn, Liz Truss í nýja embættinu, þegar hann hélt síðustu ræðuna sína við Downing-stræti í morgun sem leiðtogi landsins.
„Það er tími til að við styðjum við bakið á Liz Truss og teymið hennar,“ sagði hann við samstarfsfélaga sína í breska Íhaldsflokknum.
Í ræðunni, sem sérfræðingar segja að hafi verið í anda stjórnmálamannsins, líkti Johnson sjálfum sér við eldflaug sem hefði nú uppfyllt hlutverk sitt og væri nú að fara að brotlenda á afskekktum stað á Kyrrahafinu.
Þá lagði hann jafnframt mikilvægi þess að flokksmenn myndu leggja allan ágreining innan flokksins til hliðar og taka höndum saman og sameina krafta sína í baráttunni við orkukreppuna, sem mun að öllum líkindum verða fyrsta stóra verkefnið sem Truss glímir við í stjórnartíð sinni.
„Ef Dilyn (hundur Johnson) og Larry (kötturinn í Downing-stræti) geta sett einstaka ágreining á bakvið sig, þá getur Íhaldsflokkurinn það líka,“ bætti Johnson við til að leggja áherslu á málflutning sinn.
Boris Johnson, sem hefur starfað sem forsætisráðherra frá því hann sagði af sér embætti í byrjun júlí, mun færa Elísabetu Englandsdrottningu formlegt uppsagnarbréf sitt í dag.
Truss bar sigur úr býtum í leiðtogakjöri Íhaldsflokksins í Bretlandi og verður þar með næsti forsætisráðherra landsins. Atkvæðagreiðslunni lauk á föstudaginn þar sem kosið var á milli Truss, sem er utanríkisráðherra, og Rishi Sunak, fyrrverandi fjármálaráðherra Bretlands.
Truss og Johnson fara í dag á fund með Elísabetu Bretadrottningu en hún er stödd í sumarhúsi sínu á skoska hálendinu. Vegna heilsufarsvandamála hefur hún ekki treyst sér til að snúa til baka til Buckinghamhallar að sumarfríi loknu.
Á fundinum mun drottningin biðja Truss, sem leiðtoga stærsta flokksins á þingi, að mynda ríkisstjórn.
Truss mun síðan ferðast aftur til London í dag og ávarpa þjóðina fyrir utan Downingstræti 10, ef veður leyfir.