Villti um fyrir þinginu í Partygate-máli

Boris Johnson fyrir utan heimili sitt í gær.
Boris Johnson fyrir utan heimili sitt í gær. AFP/Justin Tallis

Boris Johnson villti um fyrir breska þinginu með visvítandi hætti vegna veisluhalda í Downingstræti 10 á meðan á kórónuveirufaraldrinum stóð, þegar hann var forsætisráðherra Bretlands.

Þetta kemur fram í skýrslu rannsóknarnefndar breska þingsins vegna Partygate-málsins svokallaða. Fram kemur að Johnson hefði verið vikið í 90 daga úr starfi sem þingmaður fyrir „endurtekna“ óvirðingu við þingið, hefði hann ekki sagt af sér sem þingmaður í síðustu viku.

Johnson hefur vísað skýrslunni á bug og segir hana „langdregna pólitíska aftöku“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert