Írönsk yfirvöld hafa hafið rannsókn á dauða manns sem var skotinn er hann var að fagna eftir leik Íran og Bandaríkjanna á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu, en síðarnefnda liðið bar sigur úr býtum.
Tap Írans á þriðjudaginn leiddi til þess að karlalandsliðið hefur lokið leik á mótinu.
Eftir að leiknum lauk var Mehran Samak skotinn til bana í borginni Bandar Anzali.
„Rannsókn er hafin og saksóknari á svæðinu leiðir hana,“ sagði í tilkynningu saksóknara í Gilan-héraði.
Mannréttindasamtök utan Írans segja að Samak, sem var 27 ára gamall, hafi verið skotinn af öryggissveitum Írans eftir að Samak þeytti bílflautu sína á meðan tapi Írans var fagnað í borginni.
Tap landsliðs Írans vakti bæði gleði og hugarangur í ríkinu en þjóðin sundraðist eftir að íranska konan Mahsa Amini lést í haldi siðalögreglu ríkisins 16. september. Dauði hennar hefur leitt til mikilla mótmæla sem enn standa.