Óttast að fuglaflensa berist í menn

Sérfræðingar óttast fuglaflensu.
Sérfræðingar óttast fuglaflensu. AFP/Alex Hofford

Alþjóðlega heilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur viðrað áhyggjur sínar af að fuglaflensa berist í menn.

Í tilkynningu sem stofnunin sendi frá sér í dag segir að sífellt fleiri tilvik greinist þar sem H5N1 eða fuglaflensa hafi greinst í spendýrum sem eru líffræðilega mun skyldari mannfólki en fuglum.

Þetta vekur áhyggjur vísindamanna sem telja auknar líkur á því að veiran berist í menn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert