Fuglaflensa í haferni og æðarfugli

Haförn á flugi.
Haförn á flugi. mbl.is/Jónas Erlendsson

Í sýnum sem tekin voru úr haferni sem fannst dauður á skeri úti fyrir Barðaströnd um miðjan september fundust skæðar fuglaflensuveirur af stofni sem hefur ekki greinst hér á landi áður og er ekki algengur, HPAI H5N5. Sýnin voru rannsökuð á Tilraunastöð HÍ að Keldum.

Í dag bárust svo Matvælastofnun upplýsingar frá Keldum um að æðarfugl sem fannst dauður á Ólafsfirði fyrir skömmu hafi verið smitaður af sama stofni fuglaflensuveiru.

„Þessar greiningar undirstrika mikilvægi þess að tryggja góðar sóttvarnir í umgengni við alifugla og aðra fugla í haldi. Matvælastofnun minnir á að tilkynningar frá almenningi um fund á veikum og dauðum villtum fuglum eru lykilatriði í eftirliti með tilvist og útbreiðslu fuglaflensu,“ segir í tilkynningu frá MAST. 

Þar segir einnig að fáar tilkynningar um veika eða dauða villta fugla hafi borist Matvælastofnun frá því í vor, eftir að fjöldadauði í ritum, lundum og öðrum svartfuglum dvínaði. Áður hafi verið upplýst að fuglaflensa greindist ekki í þeim. Frá og með júlímánuði hafi einungis verið tekin fimm sýni úr villtum fuglum. Þrjú þeirra reyndust neikvæð með tilliti til fuglaflensu en tvö jákvæð. Þeir fuglar sem reyndust jákvæðir voru annars vegar ungur haförn sem drapst 17. september á skeri í Breiðafirði og hins vegar æðarfugl sem fannst dauður á Ólafsfirði 21. september, að því er MAST greinir frá. 

Hvaðan barst veiran?

Þá kemur fram, að veirurnar sem greindust séu af stofni HPAI H5N5 sem sé ekki algengur og séu þetta fyrstu greiningar þessa stofns hér á landi. Spurning vakni um hvaðan veiran hafi borist.

„Stofninn sem hefur verið ríkjandi í Evrópu og víðar síðan í október 2021 er HPAI H5N1. Á sama tímabili hefur HPAI H5N5 einungis greinst í fjórum sýnum í Evrópu, öll úr villtum fuglum í Noregi og Svíþjóð, og í örfáum sýnum úr villtum fuglum, rauðrefi og skunki í austurhluta Kanada. Með heilraðgreiningu veiranna úr haferninum og æðarfuglinum verður vonandi hægt að skera úr um hvort þessi stofn hafi borist frá Evrópu eða nú síðsumars með komu farfugla frá varpstöðvum vestan Atlantshafsins,“ segir í tilkynningu. 

Almenningur beðinn um halda áfram að tilkynna um fund á veikum eða dauðum fuglum

„Miðað við þau gögn sem liggja fyrir á þessum tímapunkti má ætla að útbreiðsla skæðra fuglaflensuveira sé lítil hér á landi og smithætta fyrir alifugla og aðra fugla í haldi því lítil. Eftir sem áður er mikilvægt að allir fuglaeigendur gæti sóttvarna, til að verja fugla sína eins og kostur er gegn smiti frá villtum fuglum og Matvælastofnun biður almenning um að halda áfram að tilkynna um fund á veikum og dauðum villtum fuglum. Tilkynningarnar eru mjög mikilvægur liður í vöktun á tilvist og útbreiðslu smits,“ segir enn fremur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert