Minnst 60 látnir eftir hryðjuverkin

Árásin er sú mannskæðasta í Rússlandi í næstum 20 ár.
Árásin er sú mannskæðasta í Rússlandi í næstum 20 ár. AFP/Stringer

Að minnsta kosti 60 létust í hryðjuverkaárás Ríkis íslams á Crocus City-tónleikahöllina í útjaðri Moskvu í Rússlandi í gærkvöldi.

Hryðjuverkamenn klæddir felulitum hófu skothríð á tónleikum rússnesku rokksveitarinnar Piknikí.

Árásin er sú mannskæðasta í Rússlandi í næstum 20 ár, að því er BBC greinir frá.

Skildu eftir vopn og skotfæri

Rannsóknarlögreglumenn unnu á vettvangi í nótt við að safna sönnunargögnum, þar á meðal vopnum og skotfærum sem hryðjuverkamennirnir skildu eftir.

Rússnesk stjórnvöld hafa veitt litlar upplýsingar um hryðjuverkamennina og hvar þeir eru niðurkomnir.

Vísbendingar voru um það í gærkvöldi að þeir hefðu komist undan og að lögregla væri að reyna að hafa upp á þeim, að sögn fréttaritara BBC í Rússlandi.

115 manns voru fluttir á spítala, þar á meðal fimm …
115 manns voru fluttir á spítala, þar á meðal fimm börn. AFP/Stringer

Barn í lífshættu

Að sögn heilbrigðisráðherra Rússlands, Mikhaíl Múrashkó, voru 115 manns fluttir á spítala, þar á meðal fimm börn.

Eitt barnanna er í lífshættu. Af 110 fullorðnum sjúklingum eru 60 taldir vera alvarlega særðir.

Vladimír Pútín Rússlandsforseti hefur enn ekki tjáð sig opinberlega um árásina.

Víða í Moskvu og öðrum borgum í Rússlandi má sjá …
Víða í Moskvu og öðrum borgum í Rússlandi má sjá sorgarskilti. AFP/Stringer
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert