Aðgerðir lögreglunnar í Hollandi vegna gíslatöku sem hófst á kaffihúsi í borginni Ede í morgun standa enn yfir þrátt fyrir að gíslatökunni sé lokið.
Frá þessu greinir lögreglan í Hollandi á miðlinum X, en þar segir að rannsókn á vettvangi muni taka smá tíma.
Aðgerðir viðbragðsaðila á svæðinu vegna gíslatökunnar hófust á níuna tímanum í morgun, á staðartíma. Aðgerðirnar standa enn yfir en öllum gíslum hafði verið sleppt á fyrsta tímanum á staðartíma.
Betur fór en á horfðist því gíslatökunni lauk án blóðsúthellinga þar sem allir gíslar voru látnir lausir auk þess sem lögreglan handtók hinn grunaða.
Lögreglan í Hollandi greindi fljótlega frá því að engar vísbendingar væru um að um hryðjuverk væri að ræða en í undanfara þeirrar tilkynningar höfðu 150 heimili í miðbæ Ede verið rýmd vegna ástandsins.
Nokkrir fjölmiðlar á svæðinu greindu frá því að „ruglaður“ maður hafi ráðist inn á kaffihúsið snemma í morgun og haft uppi hótanir auk þess að halda fjórum í gíslingu.
Fyrr í morgun greindi fréttaveita AFP frá því að fjölmiðlar á svæðinu hefðu greint frá því að fjórir eða fimm manns væru að verki. Lögreglan á svæðinu hef enn ekki staðfest hvor einn eða fleiri hafi staðið að baki gíslatökunnar.
Gíslarnir voru alls fjórir og var þremur þeirra sleppt á tólfta tímanum á staðartíma. Rúmum klukkutíma síðar höfðu allir gíslarnir verið látnir lausir og tilkynning barst frá lögreglu um að einn hafi verið handtekinn, grunaður um að hafa staðið að baki gíslatökunni.
Á myndum frá fjölmiðlum á svæðinu má sjá mann krjúpa á jörðinni með hendur fyrir aftan bak á meðan lögreglumenn setja á hann handjárn.
René Verhulst, borgarstjóri Ede, sendi frá sér yfirlýsingu á meðan á gíslatökunni stóð þar sem hann sagði ástandið hræðilegt fyrir marga.
„Þetta er hræðilegt ástand fyrir allt þetta fólk. Hugur minn er hjá þeim og ástvinum þeirra. Ég vona að nú fari að leysast úr ástandinu hratt og örugglega.“
Þá biðlaði hann til fólks um að dreifa ekki þeim fjölda myndbanda sem gengur um netið frá ástandinu.
„Gíslarnir sem nú eru lausir eiga rétt á friði og friðhelgi einkalífs. Lögreglan vill líka geta sinnt starfi sínu sem skyldi.“