Undir áhrifum fíkniefna

Lögreglan á Akureyri stöðvaði för ökumanns um kvöldmatarleytið í gærkvöldi en sá reyndist undir áhrifum fíkniefna.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni var honum sleppt að lokinni blóðsýnatöku. Að öðru leyti var vaktin róleg þar á bæ.

Í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var kvöld- og næturvaktin róleg og tíðindalaus.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert