Einstaklingskeppni WOW Cyclothon hófst klukkan 17 í dag þegar sjö hjólreiðamenn lögðu af stað í hring um landið frá Egilshöll. Þá lögðu fimmtán lið frá samtökunum Hjólakrafti af stað klukkan 18. Í liðum Hjólakrafts eru hátt í 100 börn ásamt foreldrum og fylgdarmönnum en nær allir hjálpast að við að hjóla kílómetrana 1.358.
Á morgun munu aðrir keppendur í WOW Cyclothon leggja af stað. A-flokkur, með fjórum hjólreiðamönnum og tveimur aðstoðarmönnum, kl. 17.00 og B-flokkur, með 10 liðsmönnum, kl. 18.00.