Hálka á heiðum

mbl.is/Kristinn Magnússon

Hálkublettir eru á Hellisheiði og í Þrengslum en á Suðurlandi er á köflum nokkur hálka, einkum á útvegum.

Á Vesturlandi, Vestfjörðum og Norðurlandi er talsvert autt en þó sums staðar ýmist hálka eða hálkublettir, einkum á fjallvegum og útvegum.

Það er hálka á Mývatns- og Möðrudalsöræfum, og á Austurlandi er víðast hvar hálka eða snjóþekja en greiðfært er með suðausturströndinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert