Heimsmeistaramótið í jójó í Hörpu

Páll Valdimar Kolka Guðmundsson keppir fyrir hönd Íslands á heimsmeistaramótinu …
Páll Valdimar Kolka Guðmundsson keppir fyrir hönd Íslands á heimsmeistaramótinu í jójó sem fer fram hér á landi um miðjan ágúst. Ljósmynd/Aðsend

„Við erum ótrúlega spennt,“ segir Sigurhans Óskar Sigurhansson, einn skipuleggjenda heimsmeistaramótsins í jójó sem haldið verður hér á landi 10.-12. ágúst næstkomandi. Fer mótið fram í Silfurbergi í Hörpu, en er þetta í fyrsta sinn sem heimsmeistaramót í íþróttinni er haldið hérlendis.

„Mótið flakkar á milli heimsálfa og þetta er í annað sinn sem það er haldið í Evrópu,“ segir Sigurhans, en undirbúningur mótsins hefur tekið tvö ár. Tvö hundruð keppendur frá þrjátíu löndum eru skráðir til leiks og má búast við yfir 500 erlendum gestum vegna mótsins að hans sögn.

Páll Valdimar Kolka Guðmundsson keppir fyrir hönd Íslands en hann hefur áður keppt á heimsmeistaramótinu á erlendri grundu auk þess að hafa hlotið silfur í tvígang á Evrópumótinu, sigrað opna breska meistaramótið og stórmót í Japan.

Kenna gestum og gangandi á jójó

„Keppt er í fjölbreyttum stílum á mótinu þar sem keppendur láta ljós sitt skína og jójóin fljúga en dómarar rýna í listræna tjáningu keppenda, fimi og úthugsaða og taktfasta frammistöðu við tónlist. Aðrar keppnisgreinar eru meðal annars þar sem keppendur láta jójó leika í lausu lofti og notkun tveggja jójóa samtímis,“ segir í fréttatilkynningu vegna mótsins. 

Neðra rýmið í Hörpu, Flói, verður sérstakt kennslu- og æfingarsvæði fyrir alla þá sem vilja líta inn og prufukeyra jójó í fyrsta sinn eða dusta rykið af gamla jójóputtanum. Þeir sem standa að kennslunni eru keppendur mótsins. Þátttaka er ókeypis og býðst gestum og gangandi að koma og taka þátt.

Skipulag mótsins hérlendis er í höndum Páls Valdimars Kolka Guðmundssonar, Sigurhans Óskars Sigurhanssonar og Ben McPhee, og er það haldið í samstarfi við Alþjóðlega jójósambandið (IYYF). Stærstu styrkaraðilar mótsins eru YoYoFactory og Mountain Dew.

Frekari upplýsingar um mótið er að finna á heimasíðu mótsins og Facebook-síðu þess. Þá er hægt að kaupa miða á mótið á Tix.is.

Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert