Hæglætisveður á landinu í dag

Spáð er ágætu veðri á landinu dag.
Spáð er ágætu veðri á landinu dag. mbl.is/Ómar Óskarsson

Spáð er suðlægri eða breytilegri átt á landinu í dag, þremur til átta metrum á sekúndu.

Dálítil rigning verður með köflum en lengst af verður þurrt norðanlands. Lítið eitt hvassara verður á morgun, samkvæmt Veðurstofu Íslands.

Úrkomumeira verður sunnantil á landinu fyrripart dags en norðantil seint á morgun.

Hiti verður á bilinu fjögur til tíu stig yfir daginn.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert