Húsleit var gerð á heimili Sigurðar Gísla Björnssonar, framkvæmdastjóra fiskútflutningsfyrirtækisins Sæmarks, skömmu fyrir áramót en Sigurður er grunaður um stórfelld skattaundanskot sem talin eru hlaupa á hundruðum milljóna króna. Þetta kemur fram á forsíðu Fréttablaðsins í dag.
Eignir hans voru á sama tíma kyrrsettar og bankareikningar haldlagðir. Þetta herma heimildir Fréttablaðsins.
Embætti skattrannsóknarstjóra hefur haft mál Sigurðar til meðferðar frá því Panama-skjölin voru birt, en fjallað er um mál Sigurðar í frétt frá Reykjavík Media haustið 2016 sem var birt í Fréttatímanum í október 2016.
Viðskipti tengd aflandsfélaginu Freezing Point Corp voru sögð áberandi í gögnunum en félagið er í eigu Sigurðar Gísla Björnssonar. Ekki náðist í Sigurð vegna málsins á þeim tíma og samkvæmt frétt Fréttablaðsins í dag neitar hann að tjá sig við blaðið.