„Ég er enn að átta mig á því að ég er loksins komin heim!“ segir Sunna Elvira Þorkelsdóttir í samtali við mbl.is. Hún var flutt með sjúkraflugi frá Spáni í dag en vélin lenti síðdegis á Keflavíkurflugvelli.
Sunna var flutt rakleitt frá flugvellinum í sjúkrabíl á endurhæfingardeild Landspítalans á Grensási.
„Það var tekið rosalega vel á móti mér hér á Grensás og mjög gott að geta talað við lækna og hjúkrunarfólk á íslensku en ekki bjagaðri spænsku,“ segir Sunna en hún lamaðist eftir fall á Spáni í janúar og hafði dvalið á sjúkrahúsi þar þangað til í dag.
Farbanni hennar var aflétt í síðustu viku en hún var sett í það í kjölfar handtöku eiginmanns hennar, Sigurðar Kristinssonar, sem talinn var eiga aðild að fíkniefnainnflutningi.
Sunna segir að flugferðin heim hafi verið góð og það hafi verið vel hugsað um hana á leiðinni. Hún verður í einangrun á Grensás í nokkra daga eftir sjúkrahúsdvölina ytra.