Stuðningsmannavagn Tólfunnar frumsýndur

Strætó frumsýndi heilmerktan stuðningsmannavagn Strætó og stuðningsmannasveitar landsliðsins, Tólfunnar, fyrir leik Íslands og Gana.

Merking vagnsins er samansett úr stórri mósaík allra Facebook-prófílmynda þeirra sem tóku þátt í leik á vefnum heimsmeistaraverk.is.

Vagninn var til sýnis fyrir utan Ölver síðdegis í dag en þar hittist Tólfan fyrir alla heimaleiki Íslands og stillir raddböndin fyrir komandi verkefni. Þaðan ganga stuðningsmennirnir á Laugardalsvöll og í þetta skipti fylgdi stuðningsmannavagninn hópnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert