Framkvæmdum við Þingvallaveg lokið

Framkvæmdir hefjast á ný næsta vor til að ljúka endurbótum …
Framkvæmdir hefjast á ný næsta vor til að ljúka endurbótum á þeim sex kílómetrum sem eftir standa. Kort/Map.is

Framkvæmdum við Þingvallaveg er lokið þetta árið og hefur vegurinn verið opnaður á ný en nú tekur við hefðbundin vetrarlokun á Vallavegi, honum er lokað við Silfru og úti við Þingvallaveg.

Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar.

Fram kemur að í ár hafi tekist að ljúka við endurbætur á 3 km kafla í austurátt frá Þjóðustumiðstöðinni.

Seinni áfangi framkvæmda við Þingvallaveg hefst næsta vor og verður veginum lokað yfir sumarið 2019 á meðan lokið er við endurbætur á þeim 6 km sem eftir eru.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert