Engir Íslendingar óskað aðstoðar

Mikil eyðilegging er við strandirnar þar sem flóðbylgjan skall á.
Mikil eyðilegging er við strandirnar þar sem flóðbylgjan skall á. AFP

Engir Íslendingar hafa óskað aðstoðar utanríkisráðuneytisins vegna náttúruhamfara sem urðu í Indónesíu í gær þegar flóðbylgja skall á ströndum eyjanna Súmötru og Jövu. Að sögn Sveins Guðmarssonar, upplýsingafulltrúa ráðuneytisins hefur enginn beiðst aðstoðar borgaraþjónustu ráðuneytisins vegna atburðanna. Ekki er vitað um ferðir Íslendinga á svæðinu.

222 eru látnir af völdum flóðbylgjunnar, 843 slasaðir og 28 er enn saknað. Ekki er vitað til þess að Íslendingar hafi látist, slasast eða sé saknað á hamfarasvæðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert