Hrina E. coli sýkinga hjá börnum

Laugarás í Bláskógabyggð. Af ástæðum sem enn eru ókunnar hafa …
Laugarás í Bláskógabyggð. Af ástæðum sem enn eru ókunnar hafa nokkrir smitast af E. coli í Bláskógabyggð í Árnessýslu undanfarnar vikur. Slíkt smit getur lýst sér í blóðugum niðurgangi. mbl.is/

Á undanförnum 2-3 vikum hafa fjögur börn greinst á Íslandi með alvarlega sýkingu af völdum E. coli bakteríu. Börnin búa í Reykjavík en smituðust líklega í uppsveitum Árnessýslu.

Fólk smitast af E. coli í gegnum menguð matvæli eða vatn, með beinni snertingu við dýr eða snertingu við mengaðan úrgang dýra. Bakterían kemst þannig um munn og niður í meltingarveg og framleiðir eiturefni sem getur valdið blóðugum niðurgangi og í alvarlegum tilfellum nýrnabilun og blóðleysi.

Matvælastofnun greindi nýlega frá tilvist sjúkdómsvaldandi baktería í kjöti á markaði á Íslandi. Þar kom fram að STEC bakteríur finnast í 30% sýna af lambakjöti og 11,5% sýna af nautgripakjöti. Auk þess geta bakteríurnar fundist í ógerilsneyddri mjólk.

Einstaklingar sem dvalist hafa undanfarnar 2–3 vikur í uppsveitum Árnessýslu (Bláskógabyggð) og veikjast með blóðugum niðurgangi eru hvattir til að leita til læknis svo ganga megi úr skugga um hvort þeir hafi sýkst af ofangreindri bakteríu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert