Tvö börn hafa verið lögð inn á barnaspítala Hringsins vegna sýkingar af E. coli bakteríu. Börnin eru alvarlega veik og með nýrnabilun. Tvö börn til viðbótar hafa einnig smitast af e. coli bakteríu en ekki var talin þörf á að leggja þau inn en fylgst er með þeim af barnalæknum.
Þetta kom fram í viðtali við Þórólf Guðnason sóttvarnalækni, í kvöldfréttum RÚV.
Á undanförnum 2-3 vikum hafa fjögur börn greinst á Íslandi með alvarlega sýkingu af völdum E. coli bakteríu. Börnin búa í Reykjavík en smituðust líklega í uppsveitum Árnessýslu. Börnin eru á aldrinum fimm mánaða til sjö ára.
Þórólfur sagði í samtali við RÚV að börnunum heilsist alveg þokkalega. Orsök smitsins eru ókunn en matvæli og drykkjarvatn er til rannsóknar.
Tvö barnanna eru systkini en hafa ekki umgengist hin börnin, en öll fjögur hafa verið á sömu stöðum.
Einstaklingar sem dvalist hafa undanfarnar 2–3 vikur í uppsveitum Árnessýslu (Bláskógabyggð) og veikjast með blóðugum niðurgangi eru hvattir til að leita til læknis svo ganga megi úr skugga um hvort þeir hafi sýkst af ofangreindri bakteríu.