„Ekki er hægt að fullyrða að börnin [sem smituðust af E.coli á ferðaþjónustubænum Efstadal 2] hafi sýkst af umgengni við kálfa. Mögulegar smitleiðir á bænum eru margar en sterkustu faraldsfræðilegu tengslin eru við ís sem framleiddur var á staðnum.“ Þetta kemur fram í áréttingu vegna fréttaflutnings af smiti og smitleiðum E. coli sýkinga í Efstadal 2.
Þetta er sameiginleg yfirlýsing frá Sóttvarnalækni, Matvælastofnun, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, Matís og Sýkla- og veirufræðideild Landspítala.
Hún er birt í heild sinni hér fyrir neðan:
Í fréttum og viðtölum við staðarhaldara á ferðaþjónustubænum Efstadal 2 í gær 9.7.2019 um smit og smitleiðir E. coli (STEC) á bænum mátti skilja, að rannsóknarniðurstöður hafi sýnt að börnin sem sýktust á bænum hafi smitast vegna umgangs við kálfa en ekki af neyslu matvæla á bænum.
Vegna þessa viljum við árétta eftirfarandi:
Af ofangreindu má því sjá að ekki er hægt að fullyrða að börnin hafi sýkst af umgengni við kálfa. Mögulegar smitleiðir á bænum eru margar en sterkustu faraldsfræðilegu tengslin eru við ís sem framleiddur var á staðnum.
Aðgerðir og ráðstafanir sem gripið var til beinast einmitt að því að rjúfa þessar smitleiðir með því að stöðva framleiðslu á ís og samgangi við kálfa á staðnum, og skerpa á vinnureglum og hreinlæti. Nánari upplýsingar um aðgerðir og ráðstafanir í Efstadal 2 má fá hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands og Matvælastofnun.
Sóttvarnalæknir hefur einnig sett sig í samband við Safetravel.is og Samtök ferðaþjónustunnar um að koma nauðsynlegum upplýsingum til ferðamanna sem heimsótt hafa Efstadal 2 og kunna að hafa smitast. Einnig hefur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) og Sóttvarnastofnun Evrópu (ECDC) verið upplýst eins og alþjóðalög kveða á um.