Stefna VR fær flýtimeðferð

Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR.
Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR. Mbl.is/Hari

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur samþykkt flýtimeðferð í dómsmáli VR gegn Fjármálaeftirlitinu. Gerir VR kröfu um að ákvörðun Fjármálaeftirlitsins þess efnis að viðurkenna ekki lögmæti ákvörðunar fulltrúaráðs VR um að afturkalla umboð stjórnarmanna í Lífeyrissjóði verzlunarmanna, verði dæmd ógild. 

Þetta kemur fram í tilkynningu VR. Er þar reifuð sú atburðarrás sem átti sér stað í kjölfar fundar fulltrúaráðs VR 20. júní. Var á fundinum ákveðið að afturkalla umboð allra stjórnarmanna sem sitja í umboði VR í stjórn lífeyrissjóðsins. Í kjölfarið tók Fjármálaeftirlitið málið til skoðunar og var ákvörðun FME í málinu sú að þeir stjórnarmenn sem tilkynntir voru til stofnunarinnar þann 23. mars síðastliðin, væru enn stjórnarmenn lífeyrissjóðsins. 

„Stjórnvaldsákvörðun Fjármálaeftirlitsins var haldin verulegum annmarka, bæði að formi og efni til, og er þannig ógildanleg. Má þar meðal annars nefna að Fjármálaeftirlitinu bar að veita VR stöðu aðila í stjórnsýslumálinu en það var ekki gert. Þá sinnti Fjármálaeftirlitið ekki tilkynningarskyldu sinni þar sem VR var ekki tilkynnt að málið væri til meðferðar og ekki heldur um niðurstöðu málsins,“ segir í tilkynningu VR. 

„Fullnægjandi rannsókn hefði leitt í ljós að fulltrúaráð VR hefur fengið framselda heimild til þess að skipa stjórnarmenn í Lífeyrissjóð verzlunarmanna frá stjórn VR. Þá var VR ekki gefinn kostur á að kynna sér gögn máls eða koma að frekari upplýsingum um málsatvik og var þannig brotið gegn andmælarétti VR. Ljóst er að stjórnvaldsákvörðun Fjármálaeftirlitsins var haldin verulegum annmörkum sem leiða til þess að ógilda beri ákvörðunina,“ segir enn fremur. 

VR ekki eftirlitsskyldur aðili 

Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, sagði í samtali við mbl.is fyrr í dag að stofnuninni hefði á þeim tímapunkti ekki borist nein stefna. 

Þá sagðist Unnur fátt vita um málatilbúnað VR annað en það sem fram hafi komið í fjölmiðlum. Greindi Unnur þó frá þeirri afstöðu Fjármálaeftirlitsins að þar sem VR væri ekki eftirlitsskyldur aðili stofnunarinnar, hefði ekki verið talin ástæða til að hafa félagið aðila að málinu. 

„Þeir eru ósátt­ir við það að við höf­um ekki litið á þá sem aðila máls­ins. Þeir eru ekki eft­ir­lits­skyld­ir aðilar. Líf­eyr­is­sjóðirn­ir eru þeir sem við höf­um það hlut­verk að vakta eins og öll önn­ur fyr­ir­tæki sem við höf­um eft­ir­lit með, vakta að stjórn­ar­hætt­ir séu heil­brigðir og eðli­leg­ir. Okk­ar skoðun beind­ist að líf­eyr­is­sjóðnum og hvort það væri lög­mæt stjórn yfir hon­um og það er það sem ég heyri að VR er afar ósátt við, að hafa ekki verið aðili að mál­inu. Við lit­um þannig á að það væri bara okk­ar eft­ir­litsaðili sem væri aðili að þessu máli,“ sagði Unn­ur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert