Lögreglan stöðvaði för ökumanns í Austurbænum (hverfi 104) skömmu eftir miðnætti. Reyndist hann vera undir áhrifum fíkniefna auk þess sem hann var með fíkniefni á sér.
Tveir ökumenn, annar á Fiskislóð og hinn í Grafarvoginum, sem lögregla stöðvaði í nótt voru ekki með gild ökuréttindi. Ökuréttindi annars þeirra voru útrunnin en hinn hafði aldrei öðlast réttindi til þess að keyra bifreið.