Fjórða konan hefur tilkynnt lögreglu um meint kynferðisbrot Kristjáns Gunnars Valdimarssonar, lektors við Háskóla Íslands. Konan er stödd núna erlendis en hefur óskað eftir að koma í skýrslutöku til lögreglu. Þetta kom fram í kvöldfréttum stöðvar tvö samkvæmt heimildum fréttastofu.
Fyrr í dag var Kristjáni sleppt úr haldi lögreglu eftir að Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði áframhaldandi gæsluvarðhaldi yfir honum. Úrskurðurinn hefur verið kærður til Landsréttar. Ekki er líklegt að hann verði tekinn til umfjöllunar fyrr en á nýju ári.
Yfirheyrslur vegna ásakana á hendur Kristjáni Gunnari Valdimarssyni, lektor við Háskóla Íslands, sem sakaður er um frelsissviptingar, líkamsárásir og kynferðisbrot gegn þremur konum fóru fram í dag.