Mál Kristjáns látið niður falla

Mál Kristjáns Gunnars Valdimarssonar, lektors við HÍ, hefur endanlega verið …
Mál Kristjáns Gunnars Valdimarssonar, lektors við HÍ, hefur endanlega verið fellt niður.

Mál Kristjáns Gunnars Valdimarssonar, lektors við Háskóla Íslands, hefur endanlega verið látið niður falla hjá ríkissaksóknara, að því er embættið staðfestir í skriflegu svari til mbl.is.

Kristján var handtekinn á Þorláksmessu árið 2019 vegna gruns um frelsissviptingu. Lá Kristján undir grun um að hafa haldið konu nauðugri á heimili sínu í 10 daga og brotið gegn henni kynferðislega en hann var látinn laus á Þorláksmessu að skýrslutöku lokinni.

Málið var fellt niður í héraði í apríl á þessu ári á grundvelli 145. gr. sakamálalaga, þar sem það var ekki metið líklegt til sakfellingar, en þeirri niðurstöðu var áfrýjað til ríkissaksóknara og hefur málið nú endanlega verið látið niður falla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert