Kröfu lögreglunnar hafnað

mbl.is/Eggert

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur hafnað kröfu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir Kristjáni Gunnari Valdimarssyni og hefur hann því verið látinn laus. Niðurstaðan hefur verið kærð til Landsréttar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.

Þar segir ennfremur að lögreglustjóri hafi lagt kröfuna fram á laugardag en dómari tók sér frest til hádegis í dag til að taka afstöðu til málsins.

Krafan var lögð fram á grundvelli rannsóknarhagsmuna og til að koma í veg fyrir að sakborningur haldi áfram brotum meðan málum hans er ekki lokið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert