Algerlega blint á köflum á Reykjanesbrautinni

mbl.is/Eggert

Lögreglan á Suðurnesjum biður ökumenn að fara varlega á ferð um umdæmið og gera ráð fyrir slæmu veðri sem eigi eftir að versna næstu klukkustundirnar.

Fram kemur á Facebook-síðu embættisins að leigubílstjóri, sem væri á leið frá Reykjavík til Keflavíkur, hefði haft samband og greint frá því að hann væri búinn að vera eina og hálfa klukkustund á leiðinni frá Kúagerði að Vogaafleggjaranum.

Leigubílstjórinn hafi sagt veður mjög slæmt á Reykjanesbrautinni og algerlega blint á köflum.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert