Lögmenn sátu um ferðamennina í Gullfosskaffi

Ferðamennirnir voru fluttir í Gullfosskaffi um nóttina og áleiðis til …
Ferðamennirnir voru fluttir í Gullfosskaffi um nóttina og áleiðis til Reykjavíkur um morguninn. Lögmenn sátu fyrir þeim á báðum stöðum. Ljósmynd/Þór Kjartansson

Lögmenn sátu fyrir ferðafólkinu sem lenti í hrakningum við rætur Langjökuls í byrjun árs og biðu þeirra á Gullfosskaffi og aftur þar sem þeir komu með rútum í bæinn.

Þetta segir Þór Þorsteinsson, formaður Landsbjargar, en hann var gestur í Kastljósþætti kvöldsins. Þá segir hann lögmenn hafa haft samband við Landsbjörg til að fá farþegalista yfir þá sem voru í ferðinni. „Sem við náttúrulega veittum þeim ekki. Mér finnst þetta leiðindaþróun.“

Þór segir þetta leiðindaþróun.
Þór segir þetta leiðindaþróun. mbl.is

Brynhildur Bolladóttir, upplýsingafulltrúi Rauða krossins á Íslandi, sem einnig var gestur í Kastljósi, tók í sama streng og Þór og sagði þróunina ekki æskilega.

„Það er eitt af hlutverkum okkar að hlúa að þolendum í svona og verja fólk fyrir áreiti, bæði svona áreiti og áreiti frá fjölmiðlum [...] Allt áreiti þegar fólk hefur lent í áföllum eða alvarlegum atburðum getur haft afleiðingar.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert