Illviðrisdagar óvenjumargir

Illviðrisdagar voru óvenjumargir í janúar og með því mesta sem …
Illviðrisdagar voru óvenjumargir í janúar og með því mesta sem hefur verið. mbl.is/Hallur Már

„Janúar var mjög illviðrasamur. Meðalvindhraði var óvenjuhár og sá hæsti síðan í febrúar 2015. Illviðrisdagar voru óvenjumargir, með því mesta sem hefur verið. Úrkoma var vel yfir meðallagi um mestallt land,“ segir í upphafi fréttar á vef Veðurstofu Íslands um tíðafar í janúar.

Mjög snjóþungt var á Vestfjörðum og féllu tvö stór snjóflóð á Flateyri og það þriðja í Súgandafirði 14. janúar. Samgöngur riðluðust margoft í mánuðinum vegna óveðurs.

Meðalhiti í Reykjavík í janúar var 0,3 stig og er það 0,8 stigum yfir meðallagi áranna 1961 til 1990, en -0,8 stigum yfir meðallagi síðustu tíu ára. Á Akureyri var meðalhitinn -0,4 stig, 1,8 stigum yfir meðallagi áranna 1961 til 1990, en -0,1 stigi yfir meðallagi síðustu tíu ára. Í Stykkishólmi var meðalhitinn -0,1 stig og 1,7 stig á Höfn í Hornafirði.

Úrkoman 64% meiri en í meðalári

Úrkoma í Reykjavík mældist 124,0 mm sem er 64% umfram meðallag áranna 1961 til 1990. Á Akureyri mældist úrkoman 77,9 mm sem er 41% umfram meðallag áranna 1961 til 1990. Í Stykkishólmi mældist úrkoman 131,4 mm sem er nærri tvöfalt meiri úrkoma en að meðallagi.

Dagar þegar úrkoma mældist 1,0 mm eða meira í Reykjavík voru 23, 10 fleiri en í meðalári. Á Akureyri mældist úrkoma 1,0 mm eða meiri 20 daga mánaðarins, 9 fleiri en í meðalári.

Mikið fannfergi var á Vestfjörðum í janúar. Stór snjóflóð féllu á Flateyri og í Súgandafirði 14. janúar og ollu þar miklu eignatjóni. Öngþveiti varð á Keflavíkurflugvelli í miklu hríðarveðri á Reykjanesi þ. 13.

Alhvítir dagar í Reykjavík voru 15, einum fleiri en að meðaltali 1971 til 2000. Alhvítt var allan mánuðinn á Akureyri, það er 9 dögum meira en að meðaltali 1971 til 2000. Janúar var síðast alhvítur á Akureyri árið 2014.

Meðalvindhraði óvenjumikill

Sólskinsstundir í Reykjavík mældust 31,7 sem er 4,8 stundum yfir meðallagi áranna 1961 til 1990. Á Akureyri mældust sólskinsstundirnar 2,2 sem er 4,5 stundum færri en í meðalári.

Mánuðurinn var óvenjuillviðrasamur og miklar samgöngutruflanir urðu vegna veðurs að því er fram kemur í yfirliti yfir veðrið í janúar. 

Meðalvindhraði í byggðum landsins var óvenjumikill og hefur aðeins einu sinni verið álíka mikill síðan farið var að mæla með sjálfvirkum stöðvum um land allt. Það var í febrúar 2015.

Illviðrisdagar voru óvenjumargir í janúar og með því mesta sem hefur verið.

Hvassast var á landinu þ. 8. (suðvestanátt) , þ. 14 (norðaustanátt), dagana 19. og 20. (suðvestanátt) og þ. 23. (suðvestanátt). Þessa daga var meðalvindhraði allra sjálfvirkra stöðva í byggð meiri en 10 m/s. Nokkrar samgöngutruflanir urðu fleiri daga í mánuðinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert