Fleiri vegum lokað vegna veðurs

Veðrið á höfuðborgarsvæðinu í morgun.
Veðrið á höfuðborgarsvæðinu í morgun. mbl.is/Árni Sæberg

Vegagerðin hefur lokað fleiri vegum á landinu vegna veðurs og ófærðar. Þannig hefur veginum um Kjalarnes verið lokað og um Kleifaheiði og Hálfdán á Vestfjörðum.

Veginum um Hellisheiði hafði áður verið lokað fyrr í morgun og um Þrengslin. Einnig Mosfellsheiði og Lyngdalsheiði. Öxnadalsheiði gæti lokast með skömmum fyrirvara.

Komið gæti einnig til lokana um Holtavörðuheiði, Öxnadalsheiði, Hófaskarð og Mývatnsöræfi fyrir norðan og Mýrdalssand, Reynisfjall og undir Eyjafjöllum á Suðurlandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert