Hellisheiði og Þrengslin lokuð

Vegagerðin hefur lokað veginum um Þrengslin og Hellisheiðina vegna veðurs og ófærðar. Áður hafði veginum um Mosfellsheiði og Lyngdalsheiði verið lokað.

Komið gæti til lokana víða annars staðar eins og um Holtavörðuheiði, Öxnadalsheiði Hófaskarð og Mývatnsöræfi fyrir norðan og Mýrdalssand, Reynisfjall og undir Eyjafjöllum á Suðurlandi.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert