Gefnar hafa verið út viðvaranir um allt land vegna djúprar og víðáttumikillar lægðar sem fer norðaustur yfir landið í dag. Gul viðvörun tekur gildi við Breiðafjörð klukkan 8 og 9 á Vestfjörðum. Þar er útlit fyrir hvassa norðaustanátt með snjókomu.
„Í dag fer mjög djúp og víðáttumikil lægð norðaustur yfir landið. Í kjölfar hennar snýst vindur í suðvestanstorm eða -rok með éljum á sunnanverðu landinu eftir hádegi og einnig á Norður- og Austurlandi í kvöld. En á Vestfjörðum er útlit fyrir hvassa norðaustanátt með snjókomu. Þar fer að lægja síðdegis.
Vestan 18-25 m/s og él á morgun, en úrkomulítið austanlands. Frost 0 til 5 stig. Minnkandi suðvestanátt annað kvöld, en aftur stormur vestan til á landinu á fimmtudag með áframhaldandi éljagangi,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.
Lögreglan á Suðurnesjum biður fólk um að fara varlega og huga að lausamunum og byggingarverktaka að gæta að svæðum sínum. Með lægðinni sem stefnir á Reykjanes í dag, þriðjudag, eykst veðuráraun á raforkukerfið. Eldingahætta verður með meginskilum lægðarinnar einkum suðvestan- og sunnanlands. Með vestanáttinni í kjölfarið er reiknað með umtalsverðu álagi um sunnan- og vestanvert landið af völdum vinds en samkvæmt spám verður vindur mikill.
Gul viðvörun tekur gildi á höfuðborgarsvæðinu klukkan 15 í dag og gildir þangað til 9 í fyrramálið. „Vestan 15-23 m/s með éljagangi og skafrenningi og á köflum mjög lítið skyggni. Færð getur spillst.“
Á Suðurlandi er spáð hvassviðri eða stormi og tekur gul viðvörun gildi kl. 14:00 og gildir til 10 í fyrramálið. Suðvestan 15-25 m/s, hvassast í Vestmannaeyjum og með suðurströndinni. „Varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind. Útlit fyrir rigningu eða slyddu í fyrstu, en síðan él og hríðarveður um kvöldið og nóttina.“
Faxaflói - hvassviðri eða stormur — 7. jan. kl. 15:00 — 8 jan. kl. 10:00. „Suðvestan 15-25 m/s og él. Varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind. Éljagangur og lélegt skyggni, erfið akstursskilyrði.“
Við Breiðafjörð er spáð hríð en gul viðvörun tekur gildi klukkan 08:00 og gildir til 12:00. „Norðaustan 15-23 m/s og slydda eða snjókoma með köflum. Lélegt skyggni og versnandi akstursskilyrði.“
Við Breiðafjörð tekur ný gul viðvörun gildi klukkan 19 í kvöld og gildir til 1:30 í nótt. „Vestan 18-25 m/s sunnan til, éljagangur með lélegu skyggni og erfiðum akstursskilyrðum. Varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind.“
Á Vestfjörðum er gul viðvörun í gildi frá klukkan 9 til klukkan 23:30. „Norðaustan 18-23 m/s og snjókoma eða skafrenningur og á köflum mjög lítið skyggni, einkum á fjallvegum. Ekkert ferðaveður.“
Strandir og Norðurland vestra, þar tekur gul viðvörun gildi klukkan 18:00 og gildir til 02:00 í nótt. „Suðvestan 18-25 m/s og él. Búast má við mjög snörpum vindhviðum við fjöll. Varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind. Fólk hugi að lausamunum.“
Norðurland eystra, þar er spáð hvassviðri eða stormi og tekur gul viðvörun gildi klukkan 20 í kvöld og gildir til 4 í nótt. „Suðvestan 18-23 m/s og snarpar vindhviður við fjöll. Varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind. Fólk hugi að lausamunum.“
Austurland að Glettingi, þar tekur gul viðvörun gildi klukkan 19:00 og gildir til 7 í fyrramálið. „Suðvestan 18-25 m/s og mjög snarpar vindhviður við fjöll. Varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind. Fólk hugi að lausamunum.“
Á Austfjörðum tekur gul viðvörun gildi klukkan 19:00 og gildir til 8 í fyrramálið. „Suðvestan 18-25 m/s og mjög snarpar vindhviður við fjöll. Varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind. Fólk hugi að lausamunum.“
Suðausturland. Gult ástand frá klukkan 15 til klukkan 13 á morgun. „Hvassviðri eða stormur, 15-25 m/s. Varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind. Búast má við mjög snörpum vindhviðum við fjöll, staðbundið yfir 35 m/s, einkum í Mýrdal og í Öræfum, sem geta verið hættulegar fyrir vegfarendur á ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. Útlit er fyrir rigningu eða slyddu í fyrstu, en síðan stöku él um kvöldið og nóttina.“
Miðhálendið — gul viðvörun 7. jan. kl. 15:00 — 8. jan. kl. 15:00. „Suðvestan 20-28 m/s og blindhríð. Ekkert ferðaveður.“
Raforkufyrirtæki eru með viðbúnað vegna hvassviðrisins og sérstaklega vegna hættu á seltu, ísingu og eldingum. Víða eru opin tengivirki og línur sem ísingin getur sest á og valdið útslætti og skemmdum.
Búist er við að hvassviðrið hafi fyrst áhrif á Reykjanesi en færist síðan yfir Vestur- og Suðurland.
Rarik telur miklar líkur á að veðrið muni hafa áhrif á afhendingu rafmagns. Þau svæði sem Rarik telur líklegast að verði fyrir truflunum eru á Suðurlandi, Vesturlandi og Norðurlandi vestra. Starfsmenn Rarik eru í viðbragðsstöðu til að bregðast við hugsanlegum bilunum á dreifikerfinu.
Í tilkynningu Rarik er minnt á að 65% dreifikerfis fyrirtækisins eru komin í jörð. Loftlínurnar sem enn eru uppi séu hins vegar viðkvæmar fyrir áhrifum veðursins sem spáð er næstu daga og verði vaktaðar sérstaklega.
Hún getur þess einnig að hætta sé á eldingaveðri nú árdegis, áður en lægðin kemur inn á landið.
Norðaustan 15-23 m/s NV-til í dag, annars hægari vindur. Slydda eða rigning sunnan heiða og hiti 1 til 7 stig, en snjókoma með köflum og hiti um frostmark fyrir norðan.
Gengur síðdegis í suðvestan 18-25 með éljum um landið S-vert og einnig á N- og A-landi í kvöld.
Vestan 18-25 á morgun, en suðvestan 13-18 annað kvöld. Víða él, þó síst A-lands. Frost yfirleitt 0 til 5 stig.
Á miðvikudag:
Vestan og suðvestan hvassviðri eða stormur og víða él, en úrkomulítið á SA- og A-landi. Vægt frost.
Á fimmtudag:
Suðvestan 18-23 m/s og él, en heldur hægari og léttskýjað A-lands. Frost 0 til 7 stig.
Á föstudag:
Austlæg átt og víða snjókoma. Rigning eða slydda þegar kemur fram á daginn S- og A-lands og hlánar þar.
Á laugardag:
Norðvestanátt og snjókoma N-lands, en stöku él S-til á landinu. Frost 0 til 7 stig.
Á sunnudag:
Norðanátt og snjókoma eða él um landið norðanvert, en þurrt syðra. Kalt í veðri.
Á mánudag:
Útlit fyrir norðaustanátt með éljum N- og A-til á landinu.