Úrkoman víða sú mesta sem vitað er um

Frá Siglufirði þegar ofsaveðrið gekk þar yfir í desember.
Frá Siglufirði þegar ofsaveðrið gekk þar yfir í desember. Ljósmynd/Mikael Sigurðsson

Tíð var óhagstæð á norðanverðu landinu í desember en betri sunnanlands. Mikið norðanóveður gekk yfir landið dagana 10. til 11. desember sem olli miklu tjóni. Verst var veðrið á Ströndum, Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra. Mikil ísing og fannfergi fylgdu óveðrinu sem olli því að hundrað hross fennti í kaf, skemmdir urðu á rafmagnslínum með tilheyrandi rafmagnstruflunum og mikil röskun varð á samgöngum. Mánuðurinn var óvenjuúrkomusamur á norðanverðu landinu og mældist úrkoman þar víða sú mesta sem vitað er um í desember. Úrkoman á Akureyri mældist meira en þrefalt meiri en í meðalári og sú mesta sem mælst hefur þar í desembermánuði frá upphafi mælinga. Þetta kemur fram í yfirliti Veðurstofu Íslands um tíðarfar í desember.

Mesta frostið mældist 23,1 stig

Meðalhiti í Reykjavík í desember var 0,6 stig og er það 0,8 stigum yfir meðallagi áranna 1961 til 1990, en 0,1 stigi yfir meðallagi síðustu tíu ára. Á Akureyri var meðalhitinn -0,7 stig, 1,2 stigum yfir meðallagi áranna 1961 til 1990, en 0,4 stigum yfir meðallagi síðustu tíu ára. Í Stykkishólmi var meðalhitinn 0,2 stig og 1,5 stig á Höfn í Hornafirði.

Meðalhiti mánaðarins var hæstur 3,5 stig í Surtsey. Lægstur var hann -5,9 stig í Sandbúðum og Sátu. Í byggð var meðalhitinn lægstur -3,6 stig í Svartárkoti.

Mest frost í mánuðinum mældist -23,1 stig á Setri þ. 14. Mest frost í byggð mældist -21,4 stig á Húsafelli þ. 14.

Óvenjuhlýtt loft var yfir landinu dagana 2. til 3. desember. Hæsti hiti mánaðarins mældist 19,7 stig í Kvískerjum þ. 2. og er það einnig hæsti hiti sem mælst hefur í desembermánuði hér á landi. Fyrra met var 18,4 stig sem mældist á Sauðanesvita þ. 14. desember 2001. Metið var jafnframt slegið í Bakkafirði á Borgarfirði eystra (19,0 stig þ. 2.) og í Vestdal við Seyðisfjörð (18,7 stig þ. 3.). Desemberhitamet féllu eða voru jöfnuð á 53 sjálfvirkum stöðvum sem athugað hafa í tíu ár eða meira — og á þremur mönnuðum stöðvum.

Mánuðurinn var óvenjuúrkomusamur á norðanverðu landinu og mældist úrkoman þar víða sú mesta sem vitað er um í desember. Úrkoma á Akureyri mældist 191,1 mm sem rúmlega þrefalt meira en meðalúrkoma áranna 1961 til 1990. Úrkoman þar er sú mesta sem mælst hefur á Akureyri í desembermánuði frá upphafi mælinga. Í Reykjavík mældist úrkoman 71,9 mm sem er 90% af meðalúrkomu áranna 1961 til 1990. Í Stykkishólmi mældist úrkoman 56,5 mm og 138,7 mm á Höfn í Hornafirði.

Dagar þegar úrkoma mældist 1,0 mm eða meiri á Akureyri voru 20, níu fleiri en í meðalári. Í Reykjavík mældist úrkoman 1,0 mm eða meiri 12 daga, tveimur færri en í meðalári.

21 alhvítur dagur í Reykjavík

Snjóþungt var á norðanverðu landinu í desember. Mikið fannfergi fylgdi óveðrinu sem gekk yfir landið þ. 10 til 11. á norðanverðu landinu, hundrað hross fennti í kaf og samgöngur lágu niðri.

Alhvítir dagar í Reykjavík voru 21, átta fleiri en að meðaltali 1971 til 2000. Alhvítt var 23 daga á Akureyri, þremur fleiri en í meðalári.

Sólskinsstundir í Reykjavík mældust 23,1, sem er 10,9 stundum yfir meðallagi áranna 1961 til 1990. Á Akureyri var sólarlaust eins og oft í desembermánuði.

Vindur á landvísu var 0,8 m/s yfir meðallagi. Norðaustlægar áttir voru ríkjandi í mánuðinum. Mikið norðanóveður gekk yfir landið dagana 10. til 11. desember sem olli miklu tjóni. Verst var veðrið Ströndum, Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra. Þar fylgdi óveðrinu mikil ísing og fannfergi sem olli því að hundrað hross fennti í kaf, skemmdir urðu á rafmagnslínum með tilheyrandi rafmagnstruflunum og mikil röskun varð á samgöngum. Að auki var óvenjuhvasst í Vestmannaeyjum, á Þingvöllum og víða í uppsveitum Árnessýslu. Ársvindhraðamet voru slegin á nokkrum sjálfvirkum stöðvum sem hafa mælt lengur en í tíu ár, t.d. á Þingvöllum, Hjarðarlandi, Gauksmýri, Grímsey, Raufarhöfn og Svartárkoti. Að auki var fjöldi desembervindhraðameta sleginn.

Sjá nánar á vef Veðurstofu Íslands

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert