Jóhann Ólafsson
„Þetta er keimlíkt því sem var á mánudag,“ segir Daníel Þorláksson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, við mbl.is. Gul viðvörun verður í gildi á Suðvesturlandi, Vesturlandi, Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra frá því seint í kvöld fram á fimmtudagskvöld.
Icelandair hefur ákveðið að aflýsa alls 24 brottförum til og frá Evrópu á morgun vegna slæmrar veðurspár. Auk þess verður brottförum á flugi frá Bandaríkjunum til Íslands í kvöld seinkað.
Daníel bendir á að almennt séð séu landgöngubrýr við Flugstöðina í Keflavík ekki notaðar þegar vindhraði fer yfir 50 hnúta, um 25 metra á sekúndu.
„Það er útlit fyrir að vindhraði fari yfir það í nótt,“ segir Daníel.
Verst verður veðrið á fjallvegum á Vestfjörðum og heiðum á Norðurlandi. Daníel bendir á að það verði éljagangur á öllu vestanverðu landinu á morgun en nánast verður hægt að draga línu sem sýnir éljaganginn:
„Línan verður dregin frá Tröllaskaga í norðri að Mýrdalsjökli í suðri. Það verður éljagangur vestan megin við þessa ímynduðu línu,“ segir Daníel.
Það dregur úr éljagangi og vind tekur að lægja annað kvöld þangað til veðrið gengur endanlega yfir aðfaranótt föstudags.