Tjónið sem RARIK varð fyrir í óveðrinu á föstudag er undir hundrað milljónum. Tjónið sem varð í óveðrinu í desember var um 200 milljónir og segir Helga Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs hjá RARIK, að veturinn hafi vissulega verið dýrari fyrir fyrirtækið en vant er.
„Við erum ekki búin að setjast niður og reikna kostnaðinn út en við teljum að tjónið sé undir 100 milljónum, hvort það sé tæplega 100 eða rúmlega 50 vitum við ekki nákvæmlega,“ segir Helga.
Tjónið felst helst í brotnum staurum og slitnum línum. Spurð hvort veturinn hafi verið óvenjukostnaðarsamur fyrir Rarik segir Helga:
„Já, ég held að við getum farið að segja það. Þetta er ekki það sem við erum að standa í venjulega.“
Eins og mbl.is greindi frá fyrr í dag verða rafmagnstruflanir næstu daga og vikur vegna viðgerða sem sinna þarf í kjölfar óveðursins sem gekk yfir landið á föstudag. Staðan er einna verst á Suðurlandi.
5.600 heimili og vinnustaðir urðu rafmagnslaus á svæði Rarik í óveðrinu sem gekk yfir landið í gær, flestir á Suðurlandi og Suðausturlandi. Langflestir eru komnir með rafmagn aftur. Rúmlega 100 staurar brotnuðu og einnig var eitthvað um vírslit og sláarbrot.