Tveir starfsmenn fyrirtækisins Mountaineers of Iceland eru með réttarstöðu sakbornings vegna rannsóknar lögreglu á vélsleðaferð fyrirtækisins á Langjökul í janúar. Þetta kemur fram á vef Rúv.
Annar er starfsmaður og hinn er rekstraraðili fyrirtækisins, að því er fram kemur í máli Odds Árnasonar, yfirlögregluþjóns lögreglunnar á Suðurlandi, í fréttinni. Rannsókn málsins er að ljúka og verður jafnframt sent bráðlega ákærusviði, segir hann ennfremur.
39 ferðalangar voru í vélsleðaferðinni sem endaði með því að björgunarsveitir þurftu að sækja fólkið við illan leik.
Ekki náðist í Odd við vinnslu fréttarinnar.